Halda áfram
Notar þú hjólið á hverjum degi? Við flýtum umfelguninni Notar þú hjólið á hverjum degi? Við flýtum umfelguninni

Notar þú hjólið á hverjum degi? Við flýtum umfelguninni

Notar þú hjólið sem daglegan fararskjóta?

Þegar veturinn nálgast vilja margir setja vetrardekk eða nagladekk undir hjólið á sama tíma og bið getur myndast á verkstæðinu.

Þess vegna bjóðum við forgangsumfelgun fyrir þá sem nota hjólið daglega og vilja fá það aftur eins fljótt og mögulegt er.

Svona virkar þjónustan

Mánudag–fimmtudag:
Komdu með hjólið til okkar og við tryggjum að það verði tilbúið fyrir kl. 15 daginn eftir.

Föstudag–laugardag:
Hjólið verður tilbúið fyrir kl. 15 á mánudegi.

Takmarkaður fjöldi forgangsplássa er í boði á hverjum degi.

Forgangsumfelgun: 13.900 kr.

Pantaðu forgangspláss í síma 557 7777 eða sendu okkur tölvupóst á jonoli@reidhjolaverzlunin.is.

Back to top