Noah Fast 3.0
VSK innifalinn
Keyptu draumhjólið í dag — afhending eftir 8 vikur
Við sérpöntum Noah Fast 3.0 hjólið fyrir þig. Tveir möguleikar í boði. Hægt að velja milli þriggja lita eða við getum sérsniðið litinn eftir þínu litavali með Dreambuild frá Ridley.
Ridley Noah Fast 3.0 er hraðskreiðasta götuhjól sem Ridley hefur sett á markað. Hannað til að skila hámarks loftaflfræðilegri frammistöðu og krafti.
Nýjustu lögun stellsins samkvæmt UCI reglum minnkar loftmótstöðu og skilar allt að 8,5 watta sparnaði við 50 km/klst.
Framsækin keppnisgeometría tryggir sprengikraft og stöðugleika á miklum hraða.
Pláss fyrir allt að 34 mm dekk veitir aukin þægindi og stjórn, hvort sem er á sléttum vegum eða grófari yfirborði. Samþættur Nimbus Aero stýrisbúnaður sameinar þægindi og fullkomna loftaflfræði. Prófað af atvinnumönnum Uno-X Mobility—hjól sem er byggt til að vinna.
Nánari upplýsingar um hjólið og hver afhendingartíminn er má fá hjá: jonoli@reidhjolaverzlunin.is
Val á lit
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá færðu fleiri liti til að velja á hjólið. Þannig að þú átt að finna þinn lit eins og þú vilt hafa á hjólinu. Framleiðendur bjóða upp á mismarga liti fyrir hverja tegund af hjóli.
Val á drifbúnaði
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá getur þú valið um mismunandi drifbúnað á hjólið. Framleiðendur bjóða upp á mismunandi drifbúnað fyrir hverja tegund af hjóli.
Afhendingartími
Afhendingartími á sérpöntunum er örlítið mismunandi eftir framleiðendum. En að meðaltali er afhendingartími 8 vikur eftir pöntun.
Greiðslumáti
Þegar valið er að sérpanta hjól þá er greiðslumátinn þannig að þú greiðir helming við pöntun og eftirstöðvar þegar við afhendum þér hjólið. Hægt að greiða með korti, Netgíró, Pei, millifærslu og vefverzlun (straumur).