Við sérpöntum Noah hjólið fyrir þig. Tveir möguleikar í boði. Hægt að velja milli þriggja lita eða við getum sérsniðið litinn eftir þínu litavali með Dreambuild frá Ridley.
Ridley Noah er byggir á Noah Fast 3.0. Helsti munurinn á Noah og Noah Fast 3.0 er að Noah hjólið hefur venjulega sætispípu og hrútastýri (dropbar).
Ridley Noah færir keppnis-DNA frá Noah Fast 3.0 á hagstæðara verði án þess að fórna afköstum. Léttur og stífur kolefnarammi með árásargjarnri geometríu skilar öflugri kraftflutningu og nákvæmri stjórnun. Loftaflfræðileg hönnun tryggir hraða og skilvirkni á öllum köflum. Meira dekkjarými (allt að 34 mm) veitir aukin þægindi á bæði sléttum og grófari vegum. Einfaldari samþætting og örlítið meiri þyngd gerir hjólið aðgengilegra án þess að missa keppnisandann.
Fullkomið val fyrir þá sem vilja aero keppnishjól með mikla frammistöðu á betra verði.
Nánari upplýsingar og hver afhendingartíminn er má fá hjá jonoli@reidhjolaverzlunin.is
Val á lit
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá færðu fleiri liti til að velja á hjólið. Þannig að þú átt að finna þinn lit eins og þú vilt hafa á hjólinu. Framleiðendur bjóða upp á mismarga liti fyrir hverja tegund af hjóli.
Val á drifbúnaði
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá getur þú valið um mismunandi drifbúnað á hjólið. Framleiðendur bjóða upp á mismunandi drifbúnað fyrir hverja tegund af hjóli.
Afhendingartími
Afhendingartími á sérpöntunum er örlítið mismunandi eftir framleiðendum. En að meðaltali er afhendingartími 8 vikur eftir pöntun.
Greiðslumáti
Þegar valið er að sérpanta hjól þá er greiðslumátinn þannig að þú greiðir helming við pöntun og eftirstöðvar þegar við afhendum þér hjólið. Hægt að greiða með korti, Netgíró, Pei, millifærslu og vefverzlun (straumur).