Mini
VSK innifalinn
Erum með eitt sýningarhjól í verzlun okkar í Koparlit og stærð M.
Við sérpöntum Mini hjólið fyrir þig. Afhendingartími fer eftir hvenær hjól er pantað.
Omnium Mini – Létt, lipurt og öflugt brettahjól fyrir nútímann.
Mini V3 er nýjasta útgáfan af hinu rómaða Mini frá Omnium. Þetta er hraðskreitt og létt burðarhjól með stórum og þægilegum dekkjum.
Mini lítur út eins og venjulegt hjól – en með góða farangurs grind. Þægileg stærð gerir það auðvelt í meðförum og tilvalið í borgarumferð eða samgöngur.
Grindin að framan er fullkomin fyrir farangur sem fer ekki í bakpoka – og best af öllu: þú hefur hann alltaf í augsýn. Þyngd farmsins hefur nánast engin áhrif á stýringuna, þar sem burðarvirki brettagrindarinnar er beintengt við stellið.
Mini er ekki bara burðarhjól– það er leiktæki, vinnudýr og frelsistákn á tveim hjólum.