Mini
VSK innifalinn
Keyptu draumhjólið í dag — afhending eftir 8 vikur
Erum með eitt sýningarhjól í verzlun okkar í Koparlit og stærð M. Aðeins afsláttur af sýningarhjóli.
Við sérpöntum Mini hjólið fyrir þig. Að meðaltali er afhendingartími 8 vikur frá pöntun.
Omnium Mini – Létt, lipurt og öflugt brettahjól fyrir nútímann.
Mini er nýjasta útgáfan af hinu rómaða Mini frá Omnium. Þetta er hraðskreitt og létt burðarhjól með stórum og þægilegum dekkjum.
Mini lítur út eins og venjulegt hjól – en með góða farangurs grind. Þægileg stærð gerir það auðvelt í meðförum og tilvalið í borgarumferð eða samgöngur.
Grindin að framan er fullkomin fyrir farangur sem fer ekki í bakpoka – og best af öllu: þú hefur hann alltaf í augsýn. Þyngd farmsins hefur nánast engin áhrif á stýringuna, þar sem burðarvirki brettagrindarinnar er beintengt við stellið. Hámarkþyngd 125 kg á hjólið.
Mini er ekki bara burðarhjól– það er leiktæki, vinnudýr og frelsistákn á tveim hjólum.
Val á lit
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá færðu fleiri liti til að velja á hjólið. Þannig að þú átt að finna þinn lit eins og þú vilt hafa á hjólinu. Framleiðendur bjóða upp á mismarga liti fyrir hverja tegund af hjóli.
Val á drifbúnaði
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá getur þú valið um mismunandi drifbúnað á hjólið. Framleiðendur bjóða upp á mismunandi drifbúnað fyrir hverja tegund af hjóli.
Afhendingartími
Afhendingartími á sérpöntunum er örlítið mismunandi eftir framleiðendum. En að meðaltali er afhendingartími 8 vikur eftir pöntun.
Greiðslumáti
Þegar valið er að sérpanta hjól þá er greiðslumátinn þannig að þú greiðir helming við pöntun og eftirstöðvar þegar við afhendum þér hjólið. Hægt að greiða með korti, Netgíró, Pei, millifærslu og vefverzlun (straumur).