Falcn RS
VSK innifalinn
Keyptu draumhjólið í dag — afhending eftir 8 vikur
Við sérpöntum Falcn RS hjólið fyrir þig. Tveir möguleikar í boði. Hægt að velja milli þriggja lita eða við getum sérsniðið litinn eftir þínu litavali með Dreambuild frá Ridley.
Falcn RS er hágæða keppnishjól fyrir þá sem vilja fara hraðar, klifra betur og nýta hvert watt til fulls. Hjólið sameinar léttan og loftaflfræðilegan kolefnaramma með stífleika og nákvæmri stýringu fyrir hámarksafköst.
Stellið er aðeins um 830 g og er það fullkomið í erfiðar fjallaleiðir, spretti og hraðar keppnir á malbiki. Falcn RS hentar jafnt í klassískar vor-keppnir, stigalengdir og krefjandi götukeppni á ójöfnu undirlagi.
Pláss fyrir allt að 34 mm dekk veitir meiri fjölhæfni, þægindi og öryggi við mismunandi aðstæður. Hægt að velja um fjóra mismunandi drifbúnað.
Þetta er hjól fyrir metnaðarfulla hjólreiðamenn sem vilja léttleika, hraða og áreiðanleika í einum pakka. Falcn RS er byggt til að standast kröfurnar þegar markmiðið er árangur á hæsta stigi.
Nánari upplýsingar um hjólið og hver afhendingartíminn er má fá hjá: jonoli@reidhjolaverzlunin.is
Val á lit
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá færðu fleiri liti til að velja á hjólið. Þannig að þú átt að finna þinn lit eins og þú vilt hafa á hjólinu. Framleiðendur bjóða upp á mismarga liti fyrir hverja tegund af hjóli.
Val á drifbúnaði
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá getur þú valið um mismunandi drifbúnað á hjólið. Framleiðendur bjóða upp á mismunandi drifbúnað fyrir hverja tegund af hjóli.
Afhendingartími
Afhendingartími á sérpöntunum er örlítið mismunandi eftir framleiðendum. En að meðaltali er afhendingartími 8 vikur eftir pöntun.
Greiðslumáti
Þegar valið er að sérpanta hjól þá er greiðslumátinn þannig að þú greiðir helming við pöntun og eftirstöðvar þegar við afhendum þér hjólið. Hægt að greiða með korti, Netgíró, Pei, millifærslu og vefverzlun (straumur).