Einföld hjólataska - vatnsheld
VSK innifalinn
UrbanProof Storm hjólataskan er 100% vatnsheld hjólataska sem hentar einstaklega vel fyrir daglegar hjólaferðir, vinnuna eða innkaupin. Soðnir saumar og vatnsheldur rennilás halda innihaldinu þurru, jafnvel þegar íslenska veðrið lætur finna fyrir sér.
Taskan er 20 lítrar og festist auðveldlega á bögglaberann. Stillanlegt krækjukerfi hjálpar til að festa töskuna á bögglaberann. Þegar komið er á áfangastað er fljótlegt að taka hana af hjólinu og nota axlarólina til að bera hana með sér.
Helstu eiginleikar:
* 20 lítra rúmmál
* 100% vatnsheld með soðnum saumum
* Vatnsheldur rennilás
* Framleidd úr endurunnu pólýester (RPET)
* Stillanlegt festikerfi fyrir bögglabera
* Laus axlaról
* Segullokun
* Vasi fyrir smáhluti og lyklafesting
* Endurskin á báðum hliðum
* Hentar fyrir rafmagnshjól
Frábær hjólataska fyrir þá sem hjóla allt árið um kring.