E-Noah
VSK innifalinn
Keyptu draumhjólið í dag — afhending eftir 8 vikur
Við sérpöntum E Noah hjólið fyrir þig. Tveir möguleikar í boði. Hægt að velja milli þriggja lita eða við getum sérsniðið litinn eftir þínu litavali með Dreambuild frá Ridley.
Ridley E-Noah er fyrsta rafmagnsútgáfan af hinu goðsagnakennda aero keppnishjóli—létt, hraðskreitt og þú tekur varla eftir því að þetta sé rafmagnshjól.
Heildarþyngd hjólsins er undir 11kg og heldur hjólinu lipru og keppnishæfu eins og hefðbundið götuhjól. Loftaflfræðileg hönnun eykur bæði hraða og drægni, án þess að skerða stífleika eða stjórnun.
TQ HPR40 mótorinn er fullkomlega samþættur og skilar 40 Nm togi og 200 W aukaafli með náttúrulegri tilfinningu. Hljóðlát og snjöll aðstoð sem hægt er að stilla í gegnum TQ appið.
Fullkomið fyrir þá sem vilja hámarks aero frammistöðu með smá rafmagnsaðstoð.
Nánari upplýsingar um hjólið og hver afhendingartíminn er má fá hjá: jonoli@reidhjolaverzlunin.is
Val á lit
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá færðu fleiri liti til að velja á hjólið. Þannig að þú átt að finna þinn lit eins og þú vilt hafa á hjólinu. Framleiðendur bjóða upp á mismarga liti fyrir hverja tegund af hjóli.
Val á drifbúnaði
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá getur þú valið um mismunandi drifbúnað á hjólið. Framleiðendur bjóða upp á mismunandi drifbúnað fyrir hverja tegund af hjóli.
Afhendingartími
Afhendingartími á sérpöntunum er örlítið mismunandi eftir framleiðendum. En að meðaltali er afhendingartími 8 vikur eftir pöntun.
Greiðslumáti
Þegar valið er að sérpanta hjól þá er greiðslumátinn þannig að þú greiðir helming við pöntun og eftirstöðvar þegar við afhendum þér hjólið. Hægt að greiða með korti, Netgíró, Pei, millifærslu og vefverzlun (straumur).