E-Kanzo Adventure
VSK innifalinn
Keyptu draumhjólið í dag — afhending eftir 8 vikur
Við sérpöntum E-Kanzo Adventure Gravel hjólið fyrir þig. Tveir möguleikar í boði. Hægt að velja milli tveggja lita eða við getum sérsniðið litinn eftir þínu litavali með Dreambuild frá Ridley.
Ridley E-Kanzo Adventure er rafmagnsævintýrahjól hannað fyrir þá sem vilja kanna ótroðnar slóðir. Öflugur Bosch Performance CX mótor og 600Wh rafhlaða veita fullkomið jafnvægi milli krafts og drægis.Progressive geometry með slakari stýrisvinkli og lægri botnhæð tryggir stöðugleika og sjálfstraust á tæknilegum leiðum.
Pláss fyrir allt að 2.1” dekk gefur aukið grip og þægindi á grófu undirlagi. Hjólið er byggt til að takast á við möl, skógarstíga og fjallaleiðir með léttleika og stjórn. Nútímaleg hönnun og áreiðanleg tækni gera hverja ferð að ævintýri.
E-Kanzo Adventure er fyrir þá sem vilja fara lengra – án þess að vita nákvæmlega hvert ferðinni er heitið. Hjólið kemur með Vittoria Mezcal III 29x2.1/TLR dekkum og hægt er að velja á milli tveggja mismunandi drifbúnaðar.
Nánari upplýsingar um hjólið og hver afhendingartíminn er má fá hjá: jonoli@reidhjolaverzlunin.is
Val á lit
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá færðu fleiri liti til að velja á hjólið. Þannig að þú átt að finna þinn lit eins og þú vilt hafa á hjólinu. Framleiðendur bjóða upp á mismarga liti fyrir hverja tegund af hjóli.
Val á drifbúnaði
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá getur þú valið um mismunandi drifbúnað á hjólið. Framleiðendur bjóða upp á mismunandi drifbúnað fyrir hverja tegund af hjóli.
Afhendingartími
Afhendingartími á sérpöntunum er örlítið mismunandi eftir framleiðendum. En að meðaltali er afhendingartími 8 vikur eftir pöntun.
Greiðslumáti
Þegar valið er að sérpanta hjól þá er greiðslumátinn þannig að þú greiðir helming við pöntun og eftirstöðvar þegar við afhendum þér hjólið. Hægt að greiða með korti, Netgíró, Pei, millifærslu og vefverzlun (straumur).