E-ASTR
VSK innifalinn
Keyptu draumhjólið í dag — afhending eftir 8 vikur
Við sérpöntum E-ASTR hjólið fyrir þig. Tveir möguleikar í boði. Hægt að velja milli þriggja lita eða við getum sérsniðið litinn eftir þínu litavali með Dreambuild frá Ridley.
Ridley E-ASTR er rafmagns gravel keppnishjól sem byggir á ASTR RS og heldur sömu hraða, stjórn og aksturstilfinningu. Létt og hljóðlát TQ HPR40 mótoreining veitir náttúrulega aðstoð þegar þú þarft á henni að halda – án þess að trufla upplifunina.
Aðstoðin hverfur mjúklega yfir 25 km/klst og tryggir sportlega og flæðandi hjólreiðatilfinningu. Innbyggð 290 Wh rafhlaða (með möguleika á að tengja auka rafhlöðu 160Wh) veitir góða drægni án þess að bæta við þyngd eða breyta útliti.
Hægt að koma allt að 52 mm dekkjum undir og er hjólið tilbúið í hraðar og krefjandi gravel brautir. Hjólið kemur með Vittoria Terreno 700x50c , TLR , dekkjum undir. Hægt að velja um tvenns konar drifbúnað á hjólið.
Nákvæm stýring og stöðugleiki við mikinn hraða gefa þér sjálfstraust á öllum undirlagi.
E-ASTR er fullkomið val fyrir þá sem vilja hreina keppnisupplifun – með smá aukakraft þegar mest á reynir.
Nánari upplýsingar og hver afhendingartíminn er má fá hjá jonoli@reidhjolaverzlunin.is
Val á lit
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá færðu fleiri liti til að velja á hjólið. Þannig að þú átt að finna þinn lit eins og þú vilt hafa á hjólinu. Framleiðendur bjóða upp á mismarga liti fyrir hverja tegund af hjóli.
Val á drifbúnaði
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá getur þú valið um mismunandi drifbúnað á hjólið. Framleiðendur bjóða upp á mismunandi drifbúnað fyrir hverja tegund af hjóli.
Afhendingartími
Afhendingartími á sérpöntunum er örlítið mismunandi eftir framleiðendum. En að meðaltali er afhendingartími 8 vikur eftir pöntun.
Greiðslumáti
Þegar valið er að sérpanta hjól þá er greiðslumátinn þannig að þú greiðir helming við pöntun og eftirstöðvar þegar við afhendum þér hjólið. Hægt að greiða með korti, Netgíró, Pei, millifærslu og vefverzlun (straumur).