Briton
VSK innifalinn
Keyptu draumhjólið í dag — afhending eftir 8 vikur
Við sérpöntum Briton fyrir þig.
Hvert og eitt reiðhjól er handsmíðað í verksmiðju Pashley í Stratford-upon-Avon í Bretlandi fyrir hvern viðskiptavin. Afgreiðslutími er um 4-6 vikur eftir pöntun.
Briton hjólið fékk sinn innblástur frá Roadster hjólinu. Í boði eru tveir litir Oxford Blue og Oxblood. Hjólið er fimm gíra, með Brooks B67 hnakki og góðum bremsum.
Ef þú ert að leita að félaga til að fara með þér í vinnuna, kaffihúsið eða í búðina þá er Briton fullkominn félagi með skemmtilegan karakter.
20" stærðin kemur á 26" dekkjum en 20.5" og 22.5" kemur á 28" dekkjum.
Val á lit
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá færðu fleiri liti til að velja á hjólið. Þannig að þú átt að finna þinn lit eins og þú vilt hafa á hjólinu. Framleiðendur bjóða upp á mismarga liti fyrir hverja tegund af hjóli.
Val á drifbúnaði
Þegar þú velur að sérpanta hjól hjá okkur þá getur þú valið um mismunandi drifbúnað á hjólið. Framleiðendur bjóða upp á mismunandi drifbúnað fyrir hverja tegund af hjóli.
Afhendingartími
Afhendingartími á sérpöntunum er örlítið mismunandi eftir framleiðendum. En að meðaltali er afhendingartími 8 vikur eftir pöntun.
Greiðslumáti
Þegar valið er að sérpanta hjól þá er greiðslumátinn þannig að þú greiðir helming við pöntun og eftirstöðvar þegar við afhendum þér hjólið. Hægt að greiða með korti, Netgíró, Pei, millifærslu og vefverzlun (straumur).